05 febrúar 2007

hætt með þessa helvítis druslusíðu!.. ;)

studpinninn.bloggar.is

Heiða... Out!...ritað klukkan 10:42
|

- *** -

17 janúar 2007

Halló halló...

Bara fyrir þessa fáu sem vilja vita að ég sé lifandi þá ætla ég að blogga smá...

Jólin voru fín!... Var heima á aðfangadagskvöld, borðaði rjúpu og fékk fullt fullt af fínum pökkum! Nenni ekki að telja allt upp samt! ;)

Á annan í jólum fór ég að vinna uppi á Skarði og var svo hjá Gísla alveg þangað til eftir áramót... Var soldið leiðinleg svona síðustu dagana svo ég skemmti mér ekkert alltof vel um áramótin en samt ágætlega svona framan af...
En ekki meira um það hér...

Er bara búin að vera að vinna, éta og sofa það sem af er þessu ári... Og kannski eitthvað búin að vera í skólanum...
Er núna í fjarnámstíma í Líf.203... Ekkert voðagaman og allt í klúðri hjá þessum Hor(n)firðingum... ;)

Svo er ég búin að fá tölvu!!! JEIJ :) ..Það er ýkt kúl og algjört æði... og mamma mín og pabbi eru æði að gefa mér hana! ;)

Fór á snjóbretti í fyrsta skipti í svona ár í gær!... :) Helga Björg var að meika´ða en ég var að drepast í fótunum sérstaklega eftir að fara upp stóru lyftuna!... Ég var farin að titra áður en ég komst upp... hehe... Aumingi! ;)

mmmm... Já þið fenguð blogg!... Mér er sama hvort þið eruð ánægð eða ekki! ;)

Bæjó

Heiða... Out!...ritað klukkan 09:15
|

- *** -

22 nóvember 2006

Vá...

Seinasta blogg hefði án efa ekki geta verið leiðinlegra!...
Ætla að reyna að gera betur núna þó þetta sé ekkert skemmtilegur dagur...

1. Oddskarð er búið að opna! Allir að mæta á bretti, skíði og tilheyrandi á morgun (fimmtudag 23. nóvember 2006) klukkan sautján núll núll að staðartíma! Ég býð svo upp á delicious pylsu og slúðurhreinsun fyrir 200 kall! ;)

2. 1. des. hátíðin er um helgina... Er eiginlega nokkurn veginn engan veginn að nenna á ball á Brúarási!... Fer samt ef kallinn vill endilega fara....

3. Skólinn búinn eftir viku og þá taka prófin við!... Það mátti ekki standa tæpara því ég fékk miða í dag um að ég væri að falla á mætingu... :/ Sumir ekki alveg að standa sig...

4. Er búin að hreyfa mig tvisvar sinnum í þessari viku! :D Ætla að taka mig á núna!... Þýðir ekkert annað ef það er ekki orðið of seint... :/ Fór í íþróttatíma á mánudaginn... Vorum í bandý í svona 20-30 mín. og ég held ég hafi ALDREI fengið eins ógeðslega miklar harðsperrur á ævi minni! KRÆST!!! ...Systir mín sem er kasólétt af tvíburum er helmingi liprari en ég!... :S

5. Gísli er hættur að reykja!!! :D ég gæti varla verið stoltari af mínum manni! ;)

6. Hvað varð um þrjósku, klikkuðu og kannski pínu fyndnu (en þó á vafasaman hátt) Heiðu sem var til fyrir svona 3 árum...??? Ef einhver finnur hana er hann vinsamlegast beðinn um að hringja í mig í S: 847-0169... Hver sem ég er...

??????????

Heiða... Out!...ritað klukkan 18:36
|

- *** -

05 október 2006

Fimmtudagur

Komin í helgarfrí... En samt alveg drepleiðist mér!... :(

Er ekki búin að gera neitt í dag og ekki búin að sjá neinn tilgang í að nenna að gera neitt...
Þarf svo að hjálpa mömmu að gera slátur á morgun og svo ég veit ég bara ekki meir! Mig langar að Nesk.! :(

Æj ég nenni ekkert að blogga!...
Get sagt ykkur að ég fór á ball með Outloud um seinustu helgi!... Gísli vildi ekki koma með mér svo ég fékk bara Ármann til að passa mig!... Var kannski aðeins að skemma allt hustlið því hann vildi ekki skilja mig eftir einhversstaðar úti í horni, en issss hver hefur gott af hustli? ;)
'Eg skemmti mér allavega ýkt vel þó ég hefði viljað hafa minn mann með... ;)

Á laugardaginn kíkti ég svo á barinn með Gumma og Ásdísi en þau eru svo gömul að þau voru farin heim kl. 23.30... Þá gat ég ekkert gert nema klína mér upp á Gísla og vini hans... Fór með Ármanni, Bjögga og Bjössa á barinn svo aðeins seinna... Það var ágætt en var ekkert í neinu megastuði þar....

Og nú er ég hætt....

Heiða... Out!...ritað klukkan 20:28
|

- *** -

28 september 2006

Lada, leti og lummuskapur!

Jæja kominn rúmlega mánuður frá seinasta bloggi svo það er kannski kominn góður tími fyrir næsta...

Ég er ekki ennþá búin að ná mér úr letinni sem ásótti mig í sumar!... Held ég sé farin að blása út! Kannski verð ég næsti hvalur ME bráðum!.... ;/ æjjjj
Keypti mér nú samt 3ja mánaða kort í spinning eða eiginlega bara hvað sem er í gangi, ræktina og sund eeeen hef ekki verið alveg nógu spræk í að nota þetta!... :S Er farin að sakna sjálfspíningarhvatarinnar og dugnaðarskaparins sem ég átti einu sinni!... Einhvern tíman fyrir langa löngu... :/
Kannski maður reyni að fara að taka sig á?.....
Kannski bráðum.... ekki akkúrat núna...;)

Well well well...

Lada 1200 ´87... Er góður bíll! ;) Við Gísli tókum Begga með okkur í rúnt á Seyðisfjörð og um daginn og við Beggi kíktum aðeins inn á busaball!... Merkilegt að ladan ástkæra skyldi fara alla leið (Nesk.-Sey.-Nesk.) en þetta gat hún! :)

SVO er ég oðrin 18 ára!!!!! =D það er snilld! Gerði akkúrat ekki neitt skemmtilegt á afmælinu mínu og er ekki ennþá búin að gera neitt skemmtilegt!.. :/

En stefni á feitt djamm, þynnku og drasllíf um helgina! Og þá held ég að sé tilvalið að fara að vera dugleg aftur eftir helgina! ;D

Ætla að reyna að fara á Out loud ball á morgun (föstudag) kannski.... jafnvel... Sumir eru reyndar eitthvað heitir fyrir Hlyni Ben í Mjóafirði.... Mér finnst samt leiðinlegt að keyra þangað en ef einhver vill keyra fyrir mig og á sínum bíl þá er ég kannski til í það! ;)
OG svo ætla ég á trúbadoraFestina á laugardaginn! :) Ætla að drekka alveg heilmikið og reyna að forðast allt dramað sem virðist vera að heltaka fólk þessa dagana!!!
Held þetta sé bara gott plan!
Einhver með? =P

En nú er það lærdómur!.. ;/

Heiða... Out!...ritað klukkan 12:10
|

- *** -

24 ágúst 2006

Well o Well!

Fyrir alla/þennan eina sem les/a þetta blogg þá ætla ég, Heiða M. Jóhannsdóttir Héraðsnobbi, að blogga!

Hætt að vinna í vinnunni minni sem var ekki vinna... eða þið vitið... Borgað fyrir að liggja í sólbaði og allt það!... Var orðin frekar þreytt á öllu þessu góða veðri afþví ég sólbrann smá og gat aldrei lagað það afþví það var of gott veður og ég gat ekkert gert annað en að sitja úti á daginn.... :/ spurning um að fá sér kannski 100% vinnu næsta sumar sem er kannski ekki alveg eins mikil seta....

'Eg er líka ooooofur löt eftir þetta sumar ehehe... svaf alltaf fram að hádegi og gerði ekki neitt það sem eftir var dagsins! Nema kannski á svona 2ja vikna fresti þá tók ég til.... JEIJ!
samt gerði ég helling á þriðjudaginn!.. Eða þannig sko.. Tók til og fór svo með Helgu, Ellerti, Ármanni og Steina Jr. (sem eru núbbar) að stökkva í Seldalsána (sem er líka núbbi eða núbbaá)... Það var gíggjað... Dáldið kalt úti en iss áin var hvort eð er köld líka! ;) vorum með alveg huge svona slöngu sem ellert notaði sem bát afþví hann var hanleggsbrotinn hehe hún var samt eiginlega það stór að það var ekki hægt að róa eða neitt svo það tók soldið langan tíma að komast á milli staða þarna í hylnum... :P en nóg um það...

Skólinn byrjaður!... Búið að byggja við skólann hérna svo hann er helmingi stærri og ýkt flottur! :P Good job!
Mikið af nýju fólki og flestir þessir fáu sem ég þekkti eitthvað af viti eru farnir eitthvað annað svo ég þekki svona u.þ.b. 4!... ehe.. kemur vonandi! ;)

Og ég nenni ekki að blogga!... Ætla að fara á Nesk. á morgun og sennilega vera þar í sssssttttóóóóra, nýja og bestasta besta rúmi í heimi liggjandi eins og klessa alla helgina! :P

Kannski kíki ég uppeftir eitthvað... Lemur í kjós!

Kveðja frá kiwisultunni hennar mömmu!... Sem er nömmmm

Heiða... Out!...ritað klukkan 21:59
|

- *** -

23 júlí 2006

Íííjæja!...

'Eg er mætt! ;) veit ekki alveg hvar ég á að byrja enda 2 mánuðir frá seinasta bloggi en... Okey byrja hér...:

Sjómannadagshelgin: Var í byrjun júní... aha!... Ýkt gaman þar og allt það en það er svo langt síðan að ég nenni ekki að segja meira frá því.. ;)

Er búin að vera að vinna á safninu á Nesk. í allt sumar!... Ýkt stuð! ;) fékk ekki aðra vinnu svo ég vinn bara í 4 tíma á dag við að gera nákvæmlega ekki neitt og sef svo restina af deginum!... Það er fínt! ;)

Jæja svo fór ég á Roskilde festival! Það var GEÐVEIKT!!! Vægast sagt! :)
'Eg get eiginlega ekki farið mikið út í smáatriði á þeirri ferð á blogginu því það er eitthvað gallað... En það var eiginlega bara drukkið, djammað í partítjaldinu okkar, farið á milljón og einn tónleik... og fórum svo einu sinni í tívoli í köben og á Museum Erotica, borðuðum á Hard Rock Café og Hereford Steakhouse... Fórum svo nokkrum sinnum í Roskilde bæinn líka í sund og svona.. Við Gísli fórum einu sinni á veitingastað sem heitir Cyprus og þar voru bestustu allra bestu pizzur sem ég hef smakkað!!!! Mmmmmmmmmmmmm... mmm. m...

m.... ;)

humm... jájá svo var tekið næstum tveggja daga djamm í Köben eftir allt hitt... :)

Er núna á Egs. í hjólaferð með Gísla, Inga og Siggu... Fórum til Söndru í gufubað og bjórdrykkju í gær og sitthvað svona... :)
Strákarnir fóru svo eitthvað að hjóla áðan og á meðan ætla ég að liggja í sólbaði og var að baka þessa DÝRINDIS kókos-eplaköku!.. Nammi namm :P

Nenni ekki meir! Mæti keik... Einhverntíman seinna!

Heiða... Out!...ritað klukkan 17:07
|

- *** -

hitt og þetta
- gestabókin


Site Meter
hafa mætt í gleðina
síðan 23. apríl 2004
snillingar
- anna gleðipinni
- daddi nælon
- eyrún
- Gísli minn :)
- "Ingólfur" ;)
- Helga Björg
- Lea Margret
- Bjarni Rafn
gleðilegt

- ÉG
- batman/b2
- nikita.is
- bigjump.is
gamalt og gott

nóvember 2003
desember 2003
janúar 2004
febrúar 2004
mars 2004
apríl 2004
maí 2004
júní 2004
júlí 2004
ágúst 2004
september 2004
október 2004
nóvember 2004
desember 2004
janúar 2005
febrúar 2005
mars 2005
apríl 2005
maí 2005
júní 2005
ágúst 2005
september 2005
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
maí 2006
júlí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
janúar 2007
febrúar 2007